DOS - Hausmynd

DOS

Pistill á Trúmál.is

Bendi áhugasömum á stuttan pistil eftir sjálfan mig á www.trumal.is sem finna má hérna um Ferðalag kristinnar trúar. Hér á neðan má finna hluta úr pistlinum:

"Um daginn var athygli mín vakin á því hvernig kristin trú hefur breiðst um heiminn og hvar miðpunktur kristinnar trúar hefur verið hverju sinni samanborið við önnur trúarbrögð.

Því er reglulega haldið fram að kristin trú hefti frelsi einstaklinga og hefti frelsi samfélagsins, sumir ganga jafnvel svo langt að halda því fram að kristin trú sé sér vestur-evrópskt fyrirbæri. Ég er ekki sammála því, ég tel að kristin trú sé einstök samanborið við önnur trúarbrögð þegar kemur að eiginleika trúarinnar að aðlagast og að hafa þýðingu fyrir samélög og menningu annarra þjóða án þess þó að draga nokkuð undan kjarna trúarinnar. Þetta tel ég m.a. birtast í ferðalagi trúarinnar um heiminn síðastliðin 2000 ár.

Á meðan miðpunktur Islam hefur ávallt verið í Miðausturlöndum og er þar enn, og miðpunktur Hindúsismans og Búddismans verið bundin við upprunastaði sína að mestu leyti, hefur hin kristna trú ferðast víðsvegar um heiminn og átt marga miðpunkta. Í stuttu máli má segja að kristin trú hafi hafist og byrjað ferðalag sitt meðal gyðinga í Jerúsalem, í framhaldinu voru það Hellenistar og Rómverjar við Miðjarðarhafið sem urðu að miðpunkti og næsta áfangastaði kristinnar trúar..."

....afganginn af pistlinum fá finna hérna.


Fluttur tilbaka á blogspot

Hæ hæ

 ég er fluttur, a.m.k. tímabundið yfir á "blogspot" bloggið mitt, þ.e. http://davidorn.blogspot.com

 Bestu kveðjur

Davíð


Heimsókn í íbuðina

Rétt áðan vor ég inn í stofu að leika mér með Mola, allt í einu varð mér litið til hliðar við sófann okkar þar sem að ég sá pínulitla lífveru sem er nú ekki algengt að sjá innandyra...þetta var pínulítil eðla. Við vitum ekki hvernig hún komst inn til okkar eða hversvegna hún ákvað að hanga hérna, en allaveganna ákváðum við eftir að hafa veitt hana í glas og tekið myndir af henni, að sleppa henni lausri í frelsið. Hver veit nema að hún kíkji í heimsókn með vini sína seinna, en þangað til vonum við að þessari litlu eðlu eigi eftir að vegna vel og eigi eftir að éta margar margar köngulær og margar margar flugur :)

IbudUSA 051

 

IbudUSA 046

 Og ein af Mola í lokinn :)

IbudUSA 043


Superbowl auglýsingu hafnað.

Á www.trumal.is má finna athyglisvert myndband sem sýnir auglýsingu reynt var að fá birt í tengslum við Superbowl en var hafnað.

 http://trumal.wordpress.com/2009/02/11/bonnu%c3%b0-auglysing-um-fosturey%c3%b0ingar/


Skólafréttir - stórfréttir

Áðan hringdu tengdó í okkur með fréttir um að bréf hefði borist í íbúðina í Deltona frá Georgetown University. Í bréfinu voru að finna góðar fréttir en Georgetown hefður ákveðið að samþykkja mig í LL.M. námið. Þetta er ofsalega spennandi enda er Georgetown á lista yfir 15 bestu lögfræðiskóla í Bandaríkjunum og því er þetta afskaplega stórt tækifæri. Þannig að það eru spennandi tímar framundan hjá okkur Fjólu.

 Þar til seinna - over and out


Flórída update

Fjóla fór í smá ferðalag til Deltona í síðustu viku og var með foreldrum sínum í nokkra daga á meðan ég var í St. Petersburg að reyna að ritgerðast. Núna erum við síðan komin aftur heim til St. Petersburg eftir u.þ.b. þriggja klukkutíma langa keyrslu. Venjulega tekur nú bara 2 tíma að keyra frá Deltona til St. Pete, en núna virtist eitthvað hafa orðið þess valdandi að þegar við vorum búin að keyra um 1/3 leiðarinnar þá hægðist allverulega á umferðinni og allt varð stopp og mjakaðist eins og það væri Rush hour, en það er nú sjaldnast svona umferð á Sunnudögum. En allaveganna erum við nú komin heim með 10 putta og 10 tær.

Moli braggast og er allur hinn hressasti þrátt fyrir pínulítið skordýrabit og er kominn með 110% orku. Hann var að klára að borða matinn sinn og lallaði síðan ofsalega saddur að okkur Fjólu, þar sem við sitjum upp í sófa inn í stofu. Hann lagðist síðan stutta stund á gólfið eins og hann hefði ákveðið að "leggjast á mettuna" (ef það er þá rétt notkun eða rétt orðatiltæki sem ég er að reyna að nota ;)) Allaveganna virtist hann ofursáttur við að fá smá korn í bland við smá kjúklingaskinku sem Fjóla var svo góð að elda fyrir hann.

Annars er voðalega gaman að sjá hvað Trúmál.is virðist vera virkt og margir virðast líta inn á hana. Við Benjamín vonum að fólk megi njóta þess að kíkja inn á síðuna og kannski finna eitthvað eilítið áhugavert þar. Þá vonum við líka að sjálfsögðu að þeir sem hafa áhuga og hafa tíma geti tekið þátt í því að halda þessu gangandi með áhugaverðum greinum og færslum. Nú þegar höfum við rætt við bókakaffið Glætuna um að birta frá þeim reglulegar bókakynningar á netinu þannig að bókaunnendur ættu endilega að líta við á síðuna, en fyrsta kynningin er nú þegar komin inn á netið.

Bestu kveðjur héðan úr Flórída

Davíð


Stutt blogg

Ég er á lífi! ;)

Allt gengur vel.

Er að vinna í ritgerðinni minni.

Fjóla skaust í "frí" til Deltona með foreldrum sínum.

Skólinn sem bauð mér skólastyrk er búinn að hækka skólastyrksboðið, hvað sem það nú þýðir.

Ég bíð enn eftir svörum frá fleiri skólum.

Ég er á leiðinni til Miami 21. febrúar næstkomandi að dæma umferðir 5,6, og svo áttaliðaúrslitin í undankeppni Jessup í Bandaríkjunum og búinn að fá dómarapappírana mína.

Fjóla er ofsalega dugleg að blogga, og ég hvet alla til þess að vera dugleg að kíkja á hennar blogg sem er svo miklu skemmtilegra en mitt ;)

 -Davíð


Jákvætt vandamál?

Picture 110 Núna eru ofsalega margar pælingar í gangi! Ég var að komast að því í gærkvöldi að ég komst ekki bara inn í einn skólann, heldur er búið að bjóða mér skólastyrk! Nú er bara spurningin hvort og hversu lengi maður bíði eftir viðbrögðum annarra skóla eða hvort maður stökkvi á þennan skóla og taki við skólastyrknum. Það eru svo margir þættir sem maður er að velta fyrir sér og maður veit ekkert hvaða ákvörðun er skynsamlegust. En vonandi náum við Fjóla að taka rétta ákvörðun að lokum. Þið megið endilega biðja Guð að leiðbeina okkur í þessum málum.

 Annars átti ég gott upphaf á þessari viku þegar ég mætti í bænahóp karla klukkan 06:00 á mánudagsmorgni. Þarna mæta venjulega 7 karlmenn og voru þeir ofsalega glaðir að sjá nýjan einstakling bætast í hópinn. Þetta virtist vera hinn fínasti hópur og það var ótrúlega gott, endurnærandi og styrkjandi að geta mætt og í raun á mjög stuttum tíma kynnst vel 7 nágrönnum og trúbræðrum sínum og biðja með þeim til Guðs um leiðsögn og styrk í vikunni sem er framundan. Ég er ákveðinn í því að mæta aftur að viku liðinni því það er fátt betra en bænastund til þess að byrja vikuna.

Það er dásamlegt hvað við finnum okkur heima við það eitt að mæta í kirkju, þrátt fyrir að þekkja engan í kirkjunni eða hverfinu og þrátt fyrir að vera mörg þúsund kílómetra frá Íslandinu okkar!


Ýmislegt framundan og nokkrar myndir

Þá er allt farið að líta betur og betur út á heimilinu, og allt að fá sitt rétta útlit. Ég er búinn að ræða við leiðbeinanda minn um ritgerðina mína, og búinn að senda á hann uppkast að beinagrind og samhliða því sendi ég á hann vinnuáætlun vegna ritgerðarinnar, hann hljómaði bara sáttur við það sem ég er að hugsa um að gera þannig að nú er bara að spýta í lófana og taka vel á næstu vikurnar.

 Annars er það að frétta líka að um um daginn höfðu Friends of Jessup, samband við mig um hvaða umferðir ég hefði áhuga á og gæti gefið mér tíma til þess að dæma í svokallaðri  Jessup Southeast Super Regional Moot Court Competition, sem er einn þáttur í bandarísku undankeppninni vegna Shearman and Sterling International Rounds sem HÍ vann þátttökurétt í, í fyrra. (en það er félagið Friends of Jessup sem reddar dómurum o.þ.h. fyrir hinar ýmsu keppnir). Ég mun þessvegna dæma nokkrar umferðir í þessari keppni sem haldin verður í University of Miami, þann 20. og 21. febrúar næstkomandi. Ofsalega spennandi :)

Annað sem er pínuspennandi líka er að ég er búinn að fá eitt svar frá einum háskólanum hérna úti sem ég sótti um í (en þetta svar kemur heldur betur snemma, því venjulega svara skólarnir ekki fyrr en í kringum Mars/Apríl skildist mér) og það svar var jákvætt :D þannig að ég er ofsalega glaður og þakklátur Guði fyrir það. Þannig að það er a.m.k. komin ein forsenda í viðbót fyrir því að við Fjóla höldum áfram að hanga hér í BNA á næsta ári.

Þá erum við Fjóla búin að heimsækja tvær kirkjur sem eru báðar bara ágætar en ég held að önnur þeirra, sú sem er nær okkur, og í rauninni bara í sömu götu og við erum í, muni verða fyrir valinu sem svona "okkar" kirkja á meðan við erum hérna m.a. er ég að hugsa um að kíkja á bænastund í fyrramálið kl 6:00. Voðalega spennandi alltsaman.

Það er kannski ágætt að benda áhugasömum á að trúmál.is er að komast í gang eftir að hafa verið í nokkurskonar "prufukeyrslu" frá því í september þá hefur verið tekin stefna um að láta síðuna rúlla vel frá 1. feb næstkomandi. Endilega kíkjið í heimsókn þangað... www.trumal.is

Jæja, ég sagði að ég myndi skella inn nokkrum myndum og það er þá gert núna!

IbudUSA 032

 Hér má sjá svalahurðina okkar með þjófavarnarmerkinu

IbudUSA 033

 Hér má svo sjá þjófavarnarmerkið ásamt þjófavörninni okkar ógurlegu...honum Mola :)

IbudUSA 034

Hér eru hjólin okkar út á "svölunum" þau eru að sjálfsögðu tryggilega læst saman við handriðið með 2 lásum!!! við Vorum að hugsa um að kaupa tvo í viðbót...svona just in case ;) þar sem að við búum nú í hættulegu Ameríkunni, sem virðist þó verða öruggari og öruggari miðað við litla Ísland eftir því sem maður horfir á fleiri og fleiri íslenska fréttatíma í gegnum netið...úfff!!!

IbudUSA 035  

Hérna má síðan sjá borðstöfuna okkar eins og hún lítur út í dag! Frá innganginum, ég í raun stend akkúrat þar sem hurðin er og mér á hægri hönd er stóri sófinn (svefnsófinna) og sófaborðið og svaladyrnar

  IbudUSA 036

hérna er svo "loveseat-ið" okkar og fínir púðar sem við keyptum til þess að hafa í sófanum. Þessi sófi er orðinn svona "sjónvarps-sófinn" okkar

IbudUSA 037

Hérna er síðan nýja borðið okkar, borðstofuborðið sem tengdó voru svo góð að gefa okkur. (ATH. myndin og hugsanlega nokkrar aðrar eru pínulítið úr fócus en ég vona að það komi ekki að sök ;))

IbudUSA

Hérna er síðan myndaborðið okkar sem er í horninu á stofunni.

IbudUSA 031

 Þetta er það sem maður sér strax til hægri við innganginn hjá okkur, og þarna er horft út um svalahurðina okkar. Til vinstri við innganginn er bara veggur...

IbudUSA 039

 Þetta er frá borðstofunni (ég stend rétt við hliðina á og fyrir aftan glerborðstofuborðið, og horfi inn í eldhúsið...á veggnum til vinstri er feneyjarklukkan okkar Fjólu og á veggnum til hægri er Jesúmynd og Feneyjarmynd sem við Fjóla keyptum.

IbudUSA 040

 Hérna er Jesúmyndin og feneyjarmyndin aftur

IbudUSA 041

 Hérna er svo vinnuaðstaðan mín, í hægrahorninu niðri má síðan sjá prentaran okkar sem er líka skanni og litaljósritunarvél!!! Og hún kostaði ekki $109, ekki $79 (nema reyndar í Wal-Mart), heldur fengum við hana á $29...í BJ's. Ótrúlegt...en Satt

IbudUSA 042

 Og að lokum settum við nýja dúkinn okkar, sem er í stíl við myndaborðs dúkinn á glerborðið okkar svona fínerís,fínt ;)

 p.s. munið að kvitta fyrir innlitinu ;)


Miðar á SUPERBOWL!!!! RUGL

Ég var að átta mig á því að SuperBowl verður hérna í TampaBay og datt því í hug að kanna hvað miðar kosta því ég hafði líka heyrt að þar sem að efnahagsástandið er slæmt hérna í BNA sem annarsstaðar, þá væru ennþá til miðar.

Draumurinn um að fara á SuperBowl var fljótur að deyja því viti menn ódýrasti miðinn kostar ekki nema litlar....$1.595.....eða rúmlega 203.000 íslenskar krónur!!!! HALLÓóóóóó!!!!!

Síðan er reyndar hægt að kaupa 16 manna svítu fyrir $218.500 (það er að segja TVÖHUNDRUÐ OG ÁTJÁN ÞÚSUND DOLLARA!!! sem jafngildir tæpum 28.000.000 (eða litlar TUTTUGU OG ÁTTA MILLJÓNIR KRÓNA!!!) sem myndi jafngilda að miðinn per haus, ef þú vilt fylla upp í 16 manna kvótann er rúmlega 1,7 milljónir!!!

RUGL


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband